Ég er glöð.

Partíið var undursamlegt.

Ég á rosalega gott fólk í kringum mig.

Ég á sætustu og klárustu dætur í heimi.

Ég fæ leigjanda um helgina, sem verður á sófanum. Hann mun sjá til þess að mér leiðist minna.

Í ágúst förum við brotna, en frábæra  fjölskyldan mín í sumarhús í Danmörku. Legoland og Tívolí.

Pabbi kemur í sumar. Það verður ósköp gott.

Ég fæ lítið frændsystkini í október. Þá missir Andrea loks statusinn að vera yngsta barnabarn Sæmundar Haraldssonar.

 Lífið er gott, þrátt fyrir allt og allt.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jesús Kristur

Gleður mig að heyra að lífið sé gott. Ég fór í sumarhús í Danmörku í fyrra...get klárlega mælt með slíku.

Jesús Kristur, 25.4.2008 kl. 10:20

2 Smámynd: Sigga

Jesús Kristur, já! Ég hlakka voða mikið til

Sigga, 25.4.2008 kl. 18:33

3 identicon

Æðislegt Sigga mín ;) Ég er líka svo sammála þér :)

*Risaknús*

Bebba (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 02:18

4 Smámynd: Sigga

:)

Takk! Knús eru góð. 

Sigga, 26.4.2008 kl. 06:58

5 Smámynd: Júdas

 Lífið brosir við þér, njóttu!

Júdas, 27.4.2008 kl. 08:45

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Heyrðu, takk fyrir boðið kæra frænka! Ég komst því miður ekki og gat ekki einu sinni látið þig vita þar sem síminn minn var rafmagnslaus og hleðslutækið niðri í vinnu!

Vildi semsagt bara segja: Til hamingju með íbúðina (og allt hitt) og ég verð að kíkja til ykkar seinna. Bestu kveðjur til ykkar allra!

Laufey Ólafsdóttir, 28.4.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband