29.10.2008 | 20:49
Skrifa...
Er gráti næst. Skrifa um mömmu á Dillon. Og mig, og okkar samskipti. Mikið, mikið óskaplega sakna ég elsku mömmu minnar.
Ætla samt ekki að láta undan reiðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.10.2008 | 23:44
Eftir helgi....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2008 | 11:47
Jæja..
Ég er með það í maganum að stofna betri síðu, sem virkar betur fyrir mig sem plögg-vettvangur. Hvaða kerfi mælið þið með?
Hér er nýtt ljóð:
Wakie wakie!
Ekki vera skoffín
komdu út að rokka
ekki skokka
áttu bokk-----------a
ég vil bjór
og góðan slurp
og hleyptu mér
í skokkið
með úhhh ahhh
og hoppið
Ekki skrælna.
Þú getur ekki skapað
ef þú ert ekki rakur
að innan og utan.
Ég skapa bara sjálfsmyndir
ég er ekki gefin fyrir hópmyndir.
Ekki hópefli.
Ég er ég
ein
ég
alltaf
ein.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2008 | 17:00
Á morgun..
Fer ég til Danmerkur með minni skemmtilegu og brothættu fjölskyldu. Verðum í Köben í eina nótt, og förum svo í sumarhús hjá fyrrverandi tengdó. Þarmeð er ferðalaginu á okkur ekki lokið, því ég fer beint frá Danmörku til Barcelona á Spáni með stúlkur tvær að hitta minn elskulega föður, og þeirra ástkæra afa.
Ég er orðin spennt, en tek róandi töflur með, til öryggis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2008 | 20:36
Skrifað meðan ég beið eftir leigubíl.
Ég ólmast um
iða
langar að gleyma öllu
pakka niður
loka augum
brjóstin út
og dansa
dansa
þar til nóttin nær mér
og bítur mig í lífbeinið.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2008 | 21:02
Í kvöld
Ætla ég í afmæli á karókístað. Hver veit nema ég taki lagið.
Þarna er ég á sviði að syngja Jolene ásamt ástkærri vinkonu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2008 | 22:34
Skrifin
Ég er löt að skrifa í sumarfríinu, held ég hafi skrifað yfir mig síðastliðinn vetur.
En ég á sætustu kisu í heimi. Held ég hafi aldrei borið svona tilfinningar til skepnu áður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.6.2008 | 11:29
Spesíur
|
Húðflúr, sushi og bikinivax |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.6.2008 | 11:25
Lífsmark
Það er margt í sigtinu, allt kraumar, og ég er lifandi.
Elskulegu stelpurnar mínar
stórfenglegar.
Erfiðar vikur án þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 07:27
Ég er glöð.
Partíið var undursamlegt.
Ég á rosalega gott fólk í kringum mig.
Ég á sætustu og klárustu dætur í heimi.
Ég fæ leigjanda um helgina, sem verður á sófanum. Hann mun sjá til þess að mér leiðist minna.
Í ágúst förum við brotna, en frábæra fjölskyldan mín í sumarhús í Danmörku. Legoland og Tívolí.
Pabbi kemur í sumar. Það verður ósköp gott.
Ég fæ lítið frændsystkini í október. Þá missir Andrea loks statusinn að vera yngsta barnabarn Sæmundar Haraldssonar.
Lífið er gott, þrátt fyrir allt og allt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)



